
Persónuverndarstefna

Svens stundar rafræna myndavélavöktun í öryggis- og eignavörsluskyni. Þeir einstaklingar sem heimsækja verslanir okkar kunna því að vera teknir upp á mynd. Vinnsla á þeim upplýsingum sem safnast með myndeftirliti byggir á lögmætum hagsmunum félagsins. Heimild til þessa er í 6. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga.
Persónuupplýsingar sem verða til við notkun öryggismyndavéla verða einungis notaðar ef upp koma atvik er varða eignavörslu, vinnuskil eða öryggi einstaklinga, s.s. þjófnað, skemmdaverk eða slys. Þær má ekki afrita eða afhenda öðrum aðila, nema á grundvelli lagaheimildar, samþykki skráðra aðila eða samkvæmt ákvörðun Persónuverndar hverju sinni. Myndupptökur eru því almennt ekki afhentar öðrum en lögreglu og þá ef um slys eða meintan refsiverðan verknað er að ræða. Þá kann myndupptökum jafnframt að vera miðlað í þeim tilgangi að Svens geti stofnað, haft uppi og eftir atvikum varið réttarkröfur.
Myndefni sem verður til við notkun öryggismyndavéla eyðist sjálfkrafa eftir að hámarki 30 daga nema nauðsyn krefji til að varðveita það til að geta stofnað, haft uppi og eftir atvikum varið réttarkröfur, einkum í dómsmáli, að því gefnu að lög heimili eða dómsúrskurður eða fyrirmæli þar til bærs stjórnvalds liggi fyrir.